Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Ef þetta væri raunin....

 
Væri lífið auðveldara.

Jólin

Mikið að gerast, mikið að jólast, mikið af myndum.

 Sigurgrímur og Karólína eru komin heim yfir jólin og við höfum það bara voða kósí.

desember 2008 104 desember 2008 112 desember 2008 117 desember 2008 136 desember 2008 130 desember 2008 222 desember 2008 164 desember 2008 165 desember 2008 097 desember 2008 299 desember 2008 323 desember 2008 309 desember 2008 313


Nú styttist ....

.. í jólin og ekki nóg með það heldur heimkomu feðranna líka.......... það verður ss meira en nóg að gera hjá mér um jólin. Það er svona, annaðhvort allt eða ekkert. 

María Ísól er lasin litla skinnið í fyrsta sinn og ég veit ekki hvor er aumari hún með hita, hor og tár eða ég að horfa á hana og vorkenna henni.  Frown En hún lætur það svo sem ekkert slá sig út af laginu og skelli hlær og spriklar eins og vanalega. Hún er hörkutól litla skottið og er búin að fatta það að ef hún er í göngugrindinni sinni þá kemst hún þangað sem hún vil og stendur eins og hinir..... og það er ekki leiðinlegt. 

Svona lítur María Ísól út lasin.... hehe litla kúttubollan

Jólasveinarnir eru byrjaðir að leggja leið sína hingað á Miðnesheiði og eru vel fóðraðir af smákökum og mjólk af Elenu Dís, þeir eru vægast sagt hrekkjóttir í ár og er ég iðulega vakin upp kl 4-5 á nóttunni til að fá jólasveinafréttir. Mér til mikillar gremju því að litla múslan sofnar ekki fyrr en milli kl 3 og 4 á nóttunni. Geisp!!

 En jólasveinar eru víst næturdýr og jólastelpur greinilega líka. Happy

jólastelpur jólastelpur

 

 

Jámm hér verður allt fullt af jólasveinum þessi jól.........


Jóólaaaaa, jólajóla,,,,, jólaaa....

Þessi auglýsing syngur í hausnum á mér stanslaust alla daga........... er að verða crazy.. eða frekar þeir sem umgangast mig. Jóólaaa jólajóla......

 


 

 Við erum ss bara að jólast mæðgurnar þessa dagana, ég er svona næstum búin með jólagjafainnkaupin í ár, ótrúlega snemma í þessu öllu. Sem er eins gott því núna eru bara allir dagar framm að jólum að verða upp bókaðir, þetta er nú meira prógrammið í desember.  Við Elena erum að undirbúa fimleikasýninguna næstu helgi, vorum að gera drekann og svona í dag  - eða komnar vel á veg með það meistarastykki. Hún vara að keppa í Ármannsheimilinu þar síðustu helgi og stóð sig eins og hetja, gat allar æfingarnar á slá og tvíslánni og gerði þær vel - ég þarf ekki að minnast á gólfæfingarnar Grin 

desember 2008 018   

 

María Ísól syngur bara og syngur, aðeins verið að prufa þessi fínu raddbönd sem hún er með - svona rétt á meðan hún frussar ekki. Hún er komin með 2 tennur og bítur þann sem stingur fingrunum upp í hana eða kemur með hendur nálægt munninum á henni eða bara þann sem hún nær í. Henni finnst amk. gaman að Jóla jólajóla...Jóólaaa-jólajól. Og skellihlær þegar það er sungið fyrir hana. Annars er alltaf stutt í hláturinn hjá henni - hún er ótrúlega glaðlint barn.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og svona til að uppfæra ykkur í útlegðinni þá er Jóólaa... jólajóla .....


 Þessi færsla var í boði Vodafone


Hafmeyjumyndbandið

Jæja þá er myndbandið við "Heard It All Before" til. 

 

Þetta verkfall mitt stóð nú ekki lengi yfir, hehe. Safnaði 180 undirskriftum eða........ 3 Shocking  


Um bloggið

Hugmyndir, tíska, fjölskyldan og fleiri fíflalæti

Höfundur

Tinna
Tinna
Nemi í fatahönnun, búsett í Danmörku með dætrum mínum 3 og honum Sigurgrími mínum.

Nýjustu myndböndin

Jógúrt

Uppi á svölum

María Ísól 9 1/2 mánaða

Nýtt bragð

taka upp úr töskunni

Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • mars 2012 985
  • mars 2012 913
  • mars 2012 785
  • mars 2012 620
  • mars 2012 138

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 118
  • Frá upphafi: 129132

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband