Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009
28.1.2009 | 00:35
Bad hair-day í orðsins fyllstu...
Minn stærsti óvinur í útlöndum er hárið á mér. Það virðist vera ógerlegt að ná því eðlilegu og múnderingarnar sem ég vakna með á morgnana eru "töff" eins og svo margt annað.... eða ekki.
Ekki nóg með að vakna svona eins og hænurass upp í vindinn - heldur var vatnslaust þennan dag til kl 14:00 .... CRAP!
Sjá myndband..... hehe, hér er ég að setja inn sjálfviljug myndskeið af mér nývaknaðri á netið, uss....
Við erum búin að vera mikið heima, Karólína er búin að vera lasin greyið en ég slapp út í dag og eyddi hellings pening á útsölunni í HM. Woha!!!
Elena mín á von á góðu í þetta skiptið.
Maríu Ísól er að fara ótrúlega fram í tilfærslum sl daga og er hún komin uppá 4 fætur núna og við það að komast á skrið, hún gerir bara armbeygjur á tánum inn á milli. Ótrúlegur kraftur í henni stelpu rófunni.
Danmerkur albúmið stækkar og stækkar.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
23.1.2009 | 19:03
Komnar til DK
Við mæðgur erum loksins komnar til Danmerkur. Ferðin gekk ótrúlega vel og litla krúttið var að njóta sín í botn á leiðinni. Hún bara brosti og hló alla leiðina og fór ekki einu sinni að gráta... algjör draumur í dós. Fluffurnar fengu hana meira að segja lánaða til að fara montferð um vélina. Það þarf ekki að taka það fram hversu ánægð hún var að hitta pabba sinn aftur, þið rétt getið ímyndað ykkur brosið, á báða vegu. 
Hér er ískalt miðað við Ísland og ég mæli ekki með að pakka niður með svefngalsa, því einhvernvegin tókst mér að pakka helling og nóg af öllu ma. 4 hlýraboli en enga hlýja peysu. 
21.1.2009 | 02:11
Lífið heldur áfram
Þegar mikið er að gera gleymir maður oft að setjast niður og blogga, en smá update.......
Fyrst og fremst...... Elena Dís missti sína fyrstu tönn eftir margra ára bið, þetta var stórmerkileg stund og henni verður seint gleymt. Tönninni var troðið strax undir koddann í von um að fá 100 kall í tannfé frá Tannálfinum (sem kom víst ekki til lífs fyrr er um 1985 og engin hafði frétt áður að slík skeppna væri til). Tannálfurinn eldist greinilega hratt því þegar hann var að koma 100 kallinum fyrir, fann hann ekki tönnina og krakkinn vaknaði, HIMINLIFANDI yfir að hafa fengið bæði peninginn og fengið að halda tönninni AKKÚRAT ÞEGAR MAMMA VAR AÐ KYSSA HANA GÓÐA NÓTT...
María Ísól er orðin 5 mánaða og farin að sitja og skríða afturábak, veltir sér þangað sem hana langar og hefur ægilegan háfaða. Hún er eins og áður voða dugleg og glaðlynd alltaf.
Elena Dís er svo komin upp á næsta stig í fimleikunum og farin að gera flikkflakk hjálparlaust.....
ehemm - hjálpi mér, ég fæ hjartaáfall!!! 
Ég er byrjuð á fullu í skólanum og er að taka mikið meira en upphaflega var ætlunin, svo mig vantar núna nokkra klukkutíma í sólarhringinn, ef einhver á svoleiðis þá væru þeir vel þegnir.... ekkert meira barneignar "frí" hér á þessu heimili.......
Sigurgrímur og Karólína eru farin aftur til Danmerkur og við María Ísól erum á leiðinni út að fara að heimsækja þau. Það verður æðislega gaman að hitta kallinn aftur og fá ærlegt knús frá stóru systur. Á meðan verður Elena Dís heima með Ásgeiri. Það verður bara voða kósí hjá þeim feðginunum hérna heima og þau geta notið þess að vera bara 2 saman áður en hann fer aftur til Kína .
13.1.2009 | 18:35
Svona 90' fílingur
Ég er búin að setja inn gestabók,, svo nú er hægt að hætta að skamma mig fyrir það.
Vinir og fjölskylda | Breytt 15.1.2009 kl. 02:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.1.2009 | 01:49
Evil svipurinn
7.1.2009 | 11:11
Kveðja
Þá eru að baki eftirminnileg jól. Það hefur mikið gerst á stuttum tíma, stórar ákvarðanir teknar, mikil gleði og mikil sorg. Hann Indriði vinur okkar kvaddi þennan heim á aðfangadag og var svo jarðsungin í gær á síðasta degi jóla eftir stutta baráttu við krabbamein.
Furðulegt hvernig lífið tekur krappar beygjur snögglega og allt í einu er þetta búið. Það er ekki nema ár síðan hann var með munnangur og svo nú er hann bara farin. Fær mann til að hugsa sig tvisvar um og meta lífið betur enn eina ferðina. Mér finnst svo stutt síðan Guðni Már fór en hann tilheyrði einnig sama vinahóp. En svona er víst lífið, maður verður að kveðja þennan heim einhvertímann.....
Skrítið hvernig þetta raðast niður, nú hef ég fylgt fleiri ungum vinum og kunningjum til grafar en öldruðum ættingjum. Kannski er það af því að "gamla" fólkið í minni fjölskyldu er svo ungt að það er engin á leiðinni neitt eða að þetta sé ólukka minnar kynslóðar. Að jarða vini sína og kunningja að meðaltali annaðhvert ár frá 17 ára aldri er ekki eftirsóknarvert. Það þroskar þó sálina og gefur lífinu meira gildi.
Indriði var einn af þessum "gömlu" traustu vinum sem við héngum heima hjá svo tímunum skipti og hlustað á LIVE og Pearl Jam þegar við vorum unglingar. Gamlir vinir eru þeir dýrmætustu sem maður á, því þar liggur svo margt að baki. Ég rak upp sór augu þegar ég kom heim til hans í fyrsta skipti því að húsgögnin og skraut munirnir voru þeir sömu og heima hjá mér, það kom svo í ljós að mamma mín og pabbi hans hefðu verið að fljúga saman og þróað með sér svipaðan smekk á innanstroks munum. Hann tilkynnti mér að Díana prinsessa væri látin og sat við hliðina á mér þegar eyrað af Hollyfield var bitið af. Og við vinkonurnar komum ekkert síður til að spjalla við Lailu mömmu hanns Indriða en strákana. Það er ótrúlegt með þessa vini hvað þeir hafa haldið alltaf vel saman og 94" þegar Berglind vinkona byrjar með Atla sínum fékk hún ekki bara einn kall heldur 3, Begga og Inda líka. Ekki slæmur pakki þar. Þau hafa staðið saman eins og klettar í gegnum súrt og sætt og þurft á stuðningi hvors annars að halda í gegn um tíðina.
Berglind samdi þessi ljóð um hann Inda sem ég ætla að fá að birta hérna, því ekki var hægt að birta þau með minningargreininni í Morgunblaðinu.
Sakna þín:
Þegar lífið frá manni tekur,
góðan vin, er spurt hver er sekur?
svarið, það aldrei kemur,
háð er barátta enn fremur.
Ég mun ávallt sakna þín,
en ánægjan var öll mín.
Að fá að vera vinur þinn,
heiðurinn var allur minn.
Þú kveður:
Það er þögn ekkert heyrist,
nema hjartað berst um í brjósti mér,
tárin falla niður,
þú kveður,
alltof fljótt.
Það er logn og ekkert bærist,
nema hjartað að brotna í brjósti mér,
Tárin hrynja niður,
þú kveður,
alltof alltof fljótt.
þú varst þreyttur og fékkst að sofna.
Góða ferð og góða nótt.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 11:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.1.2009 | 02:35
Gleðilegt ár gott fólk!
Þá er 2008 loksins lokið og 2009 tekið við.
Margt hefur gerst á þessu ári og má vel segja að þetta hafi verið bæði eitt það erfiðasta og ánægjulegasta ár sem ég man eftir. En koma Maríu Ísólar í þennan heim stendur tvímælalaust upp úr enda mikill gleðigjafi hér á ferð. Og held ég að allir geti tekið undir með mér.
Það besta við áramót er að einum kafla í lífinu líkur og annar skemmtilegri og meira spennandi tekur við.
Við erum mikið búin að vera bara 3 heima og hafa það kósí og notalegt hérna ég, Sigurgrímur og María Ísól á meðan Karólína er búin að vera hjá mömmu sinni og Elena Dís hjá pabba sínum í jólafríinu. En þeir dagar sem við erum öll hérna saman eru auðvitað langskemmtilegastir ansi fjörugir og mikið leikið. Örvar bróðir er líka búin að vera í bænum með öll sín börn yfir áramótin og var þetta í fyrstaskiptið í langann tíma sem að öllum hópnum var smalað saman.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 04:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Hugmyndir, tíska, fjölskyldan og fleiri fíflalæti
Eldri færslur
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 1
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 118
- Frá upphafi: 129132
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 47
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar







sigurgrimur
eythorgud
torduringi
raudka
sir
annapanna77
austfjord
asdisran
jea
lindahronn
gattin
erla
ingahel-matur
skardshlid









