Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2010
27.1.2010 | 21:31
Lína-ballerína
26.1.2010 | 10:58
Ballerínur
Stelpurnar eru að byrja í ballet núna, Elena eftir rúmt árs hlé og Karólína í fyrsta skiptið.
Karólína er búin að vera að æfa sig upp á dag í mjöööööög langan tíma og getur varla beðið. Fyrsti tíminn hennar er í dag en hún fékk að fylgjast með Elenu í hennar fyrsta tíma.
Kennarinn hennar Elenu átti ekki til orð yfir hana þegar hún var búin með fyrsta tímann "þvílíkir hæfileikar" var það sem að hún sagði aftur og aftur, Elena er komin í "elitegruppe" strax og var boðið að sækja um í Danska konunglega ballettinn. Hún þakkaði mér kærlega fyrir að koma með hana í ballettskólann sinn og sagði aftur "þvílíkir hæfileikar" Ég labbaði út með tárin í augunum og bros allan hringinn að springa úr monti, og Elena auðvitað líka því loksins fékk hún útrás og fékk að reyna á sig. Henni hefur leiðst svo hræðilega sl ár í ballettinum því þar er ekki eins mikið action og "challance" eins og í fimleikunum, en núna eru komin inn fleiri spor og stökk, henni þótti ótrúlega gaman. Eitthvað fyrir hana.
Í hópnum hennar Karólínu eru bara 8 stelpur svo að hún fær góða kennslu og mikla athygli. Ég ætla að ath hvort ég fái ekki að smyglast inn með myndavélina.
En svona rétt á meðan, gamlar balletmyndir. 
22.1.2010 | 13:47
Flutningar
...... á efrihæðinni
Stóru stelpurnar okkar eru búnar að vera að suða um að fá að vera saman í herbergi í langan tíma. Við fjárfestum í koju og sl dagar hafa farið í að snúa efri hæðinni við. Elena og Karólína eru nú komnar í stóraherbergið María Ísól fékk sitt eigið herbergi og við Sigurgrímur tróðum okkur í litla herbergið. Þetta kemur bara ljómandi vel út allir ánægðir en sú sem er hvað allra ánægðust er litla María Ísól sem fæst ekki niður á neðri hæðina því hún er alltaf að leika.
Inni í herberginu er stór spegill sem hún getur séð sig alla í og hún veit ekki alveg hvort hún eigi að dansa eða leika eða allt í bland, þetta allt er amk. rosalega gaman.
Maríu herbergi er alveg tilbúið og hér eru nokkrar myndir af því, myndir af skvísuherberginu koma seinna þegar búið er að fínpússa það betur.
Vinir og fjölskylda | Breytt 26.1.2010 kl. 17:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.1.2010 | 18:18
Heitirðu Pálmi?
María ísól harðneitar að segja nafnið sitt og er búin að finna sér annað mjög fínt nafn.
Þetta mál er ekki búið enn, en mér sýnist á öllu að ég hafi tapað!
13.1.2010 | 14:09
2010
Þá eru jólin búin og nýtt ár gengið í garð.
Ég er búin að vera rosa léleg í þessu bloggi sl vikur sökum anna, það er ekki mikið sest niður við tölvuna með stelpurnar allar heima. Svo tölum við líka mikið við fólkið okkar á skypeinu og okkar nánustu fá nýjustu fréttir þaðan beint í æð.
Jólin voru yndisleg hérna í Danmörkinni, voðalega rólegt allt en samt nóg að gera. Við skelltum okkur í skötuveislu, jólaball og jólaboð svo eitthvað sé nefnt. Stelpurnar hittu íslenska jólaveina - þær höfðu nú samt orð á því á leiðinni heim að jólasveinninn hafi verið með maskara og netskegg.
Aðfangadagurinn var alveg æðislegur, það var "sofið út" eftir að hafa belgt sig út af skötu og hrúgast ofan á kallinum og horft á jólamyndir frameftir kvöldinu áður. Jólagrautur í hádeginu sem María Ísól kunni mjög vel að meta, snjókallasmíðar og annað tilheyrandi jóla stúss fram eftir degi.
Vinafólk okkar komu svo í mat til okkar áum kvöldið til að upplifa pakkaspenninginn og allt það. Og annað eins pakkaflóð hef ég ekki séð - enda margir sem standa að fjölskyldunni, jólaftréð var bókstaflega grafið í pökkum og það tók um 3 klukkutíma að grafa sig í gegn um þetta.
Íslendingarnir hér á svæðinu hittust svo um áramótin og stelpurnar dönsuðu til kl að verða 2 um nóttina. María Ísól var ekkert að gefa eftir þar og var í bana stuði, ekki vitund hrædd við sprengjurnar.
Það er búið að vera rosalega kalt hérna á eyjunni Als og allt fer úr skorðum við smá snjó, skólinn fellur niður og strætó hættir að ganga. Það hafa ekki verið hvít jól í Danmörku í 14 ár, Elena segist hafa komið með þetta með sér og krakkarnir hérna eru í skýjunum.
Sigurgrímur er á kafi í prófum núna, fékk úr einu (eða tveimur eiginlega) í morgun og stóð sig eins og hetja auðvitað fékk 10 í báðum áföngum
Hann er búin að vera ótrúlega duglegur að læra og nær þessu eflaust öllu með glæsibrag. 3 próf eftir ..... og svo höldum við til Íslands í sólina og hitann.
Eins og sést er vetrar-albúmið okkar orðið gígantískt og heill hellingur af myndum þar inni fyrir þá sem nenna að skoða... og munið að kvitta gott fólk.
Gleðilegt ár til ykkar allra.
Þið semeruð ekki með okkur á skype getið fundið okkur undir
sigurgrimur.jonsson
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Hugmyndir, tíska, fjölskyldan og fleiri fíflalæti
Eldri færslur
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 1
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 118
- Frá upphafi: 129132
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 47
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar







sigurgrimur
eythorgud
torduringi
raudka
sir
annapanna77
austfjord
asdisran
jea
lindahronn
gattin
erla
ingahel-matur
skardshlid








