Bloggfærslur mánaðarins, september 2010
2.9.2010 | 21:45
Sönderborg
Lífið hér í Sönderborg er komið í gang eftir sumarið og allt að falla í rútínu á ný. Hér í kring um okkur er mikið af Íslendingum og ótrúlega mikið af krökkum... til allrar lukku fyrir okkur þá eru þetta næstum allt stelpur eða um 17 íslenskar stelpur í sömu götunni.
Karólínu gengur mjög vel í skólanum, kennarinn hennar talaði um hvað hún væri dugleg og opin í tímum og hún er strax búin að eignast vinkonur í bekknum. Karólínu gengur vel í stærðfræði og er BEST í lestri í sínum bekk. Hún er búin að vera rosalega dugleg að lesa heima og við ákváðum að taka íslensku harðstjóra leiðina á lesturinn og láta hana lesa allt tvisvar (eins og kennt er á Íslandi) í stað einu sinni eins og gert er hér..... og viti menn hún er langt ... langt um betri en hinir krakkarnir í bekknum.
Þetta gefur henni mikið sjálfstraust í skólanum og hún gerir heimaverkefnin sín með
bros á vör.
Krakkarnir í hverfinu byrja að banka um hádegi til að spyrja eftir henni en þá er hún yfirleitt
í skólanum og þær þurfa oftast að bíða eftir að
Karólína komi heim svo að hún geti leikið.
Hún er byrjuð aftur í ballettinum og er síðan að fara að keppa í fótbolta á morgun með bekknum sínum. Hún fer í SFO sem er eftirskólinn hérna og gerir marga skemmtilega hluti með þeim þar, eins og um daginn var hún að smíða og kom heim með tré hjarta sem hún hafði sagað út og pússað alveg sjálf. Það er óhætt að segja að henni líði vel hérna og eigi marga vini.
Elenu gengur líka rosalega vel í skólanum, hún er best í stærðfræði, ensku og lestri í sínum bekk og var að fá einkunn úr stafsetningarprófi í vikunni þar sem hún var líka hæst þar með eina villu (algengt var að vera með 11-12 villur). Það má vel taka það fram að við foreldrarnir misstum kjálkann næstum niður í gólf þegar að hún kom heim með þá einkunn, því Elena hefur aðeins verið í Danmörku í eitt ár og samanlagt hafa um 2 1/2 mánuðir af þeim hafa verið á Íslandi.
Hún á einnig heilan helling af vinkonum hérna, bæði Íslenskum stelpum í hverfinu og dönskum úr skólanum og svo gömlu vinkonurnar frá Nordborg.
Hún er byrjuð að æfa með Elite balletthópnum og fær að fara til Kaupmannahafnar í nóvember í æfingaferð í Konunglega ballettskólann http://www.kglballetskole.dk/ hún er búin að vera rosalega dugleg að æfa sig alla vikuna og fara á auka æfingar því að það var koma að koma kona frá Kaupmannahöfn til að skoða hana, ekki nóg með að hafa komist inn í þennan hóp heldur var verið að bjóða henni að æfa með eldri stelpunum líka sem er hópurinn sem að hún sjálf hefur litið svo upp til. Þær voru ofsalega hrifnar af henni og hversu einbeitt og yfirveguð hún er á æfingum.
María Ísól er líka komin til nýrrar dagmömmu sökum flutninga og gengur vel að aðlagast því öllu líka, hún er svo sem mjög auðveldur krakki í umgengni og alltaf glöð og í góðu skapi svo að það var í raun ekki við öðru að búast. Hún er einnig búin að eignast sínar vinkonur í hverfinu en þær eru allar Íslenskar og koma svona 20 sinnum yfir daginn til að tékka á henni, sem henni þykir ákaflega gaman.
María Ísól átti 2 ára afmæli um daginn og er sérstakur áhuga maður um afmæli eftir þá uppákomu, við td. syngjum alltaf afmælissönginn þegar að það er drekkutími eða bara eitthvað gott á borðinu. Henni þykir mjöög gaman að syngja, mér og hljóðhimnunni í mér til mikillar gleði.... því hún á jú mjög sterka rödd sem sem hentar betur til söngs en annars háfaða. Stelpurnar eru ofsalega góðar við hana og ekki einu sinni hafa þær skilið hana útundan eða ekki leift henni að vera með, heldur taka þær hana alltaf með inn í leikinn. ( Hún fær td. að vera hundurinn og tröllabarnið og svona skemmtileg hlutverk ) Stóru systurnar eiga stórt hlutverk í því hvernig Maríu Ísól gengur að samblandast öðrum börnum og hún virðist vera velkominn inn í hvaða hóp sem er.
Amma Jóna kom heim með stelpurnar frá Íslandi og var hjá okkur í viku, það var yndislegt að fá hana í heimsókn og geta sýnt henni lífið okkar, nýja húsið og Sönderborg. Agnes amma er svo á leiðinni til okkar í nóvember og við getum varla beðið.
Við Sigurgrímur erum byrjuð í skólanum, mér líst ágætlega á þetta allt, þetta hljómar voða spennandi og ég er komin langt fram úr sjálfri mér og búin að gera allt sem ég ætla mér næstu árin í huganum þó svo að ég viti vel að það sé ekki mikið verklegt í byrjun....
Ég setti inn nýtt albúm með fleiri myndum merkt "haust 2010"
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Hugmyndir, tíska, fjölskyldan og fleiri fíflalæti
Eldri færslur
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 1
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 118
- Frá upphafi: 129132
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 47
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar






sigurgrimur
eythorgud
torduringi
raudka
sir
annapanna77
austfjord
asdisran
jea
lindahronn
gattin
erla
ingahel-matur
skardshlid









