9.2.2010 | 11:47
Allt á kafi
í snjó.
Hér snjóar enn eins og engin sé morgundagurinn. Þetta fer að verða komið gott, mig er farið að langa svolítið eftir sumrinu. En ég þarf víst ekki að örvænta því við erum að fara að taka forskot á vorið og fara í hlýjuna til Íslands. Það eru flestir dagarnir að verða upp bókaðir hjá okkur, við erum víst svo mörg og allri að fara á sitthvorn staðinn og svo hittast á sama stað á ákveðnum tímum þannig að það verður að skipuleggja hvern og einn svo að allt gangi upp og engin skilin eftir. Við viljum hitta sem flesta og gera sem mest en samt ekki gera neitt og slappa af. Eitt er víst að ég ætla í sund og borða soðna ýsu með smjöri, og sushi.... ekki í sundi samt.
María er að vanda voða dugleg, byrjuð að pissa í koppinn sinn , hún talar endalaust - hátt og skýrt haha eins og þeir sem hafa hitt hana vita eflaust. Hún er byrjuð hjá dagmömmu og gengur bara rosalega vel enda orðin eins og hálfs árs. Hún talar bara á íslensku við dagmömmuna sína og segir EKKERT á dönsku hahaha. Svo að í morgun fórum við með orðabókina góðu sem að stelpurnar byrjuðu með til dagmömmunnar svo að hún gæti nú skilið barnið. Það gæti verið pínu skrítið að vera með síblaðrandi barn sem að maður skilur ekki.
Ég setti inn nokkrar myndir í albúm merkt Nordborg af .... Nordborg, flestar stolnar frá honum Óla vini okkar, ég ætla að vera dugleg að bæta inn á þetta reglulega.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Hugmyndir, tíska, fjölskyldan og fleiri fíflalæti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hér voru sumardekkin sett undir í gær, við nennum ekki að aka lengur á nöglum í blíðunni. Skemmtið ykkur vel á Fróni. Óskar er í heimsókn hjá okkur núna, alveg yndislegt.
Ásdís Sigurðardóttir, 10.2.2010 kl. 14:00
Það aldeilis kyngir niður hjá ykkur, ég fyllist bara öfundar ;). En ég er til í sushi með þér Tinna endilega bjallaðu þegar þú kemur. Það væri gaman að hitta á ykkur ef þið hafið tíma.
María Ólöf Sigurðardóttir, 14.2.2010 kl. 08:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.