6.8.2010 | 10:22
Sumarið
Jæja ég veit að ég er búin að vera voðalega léleg að blogga hérna í sumar og það er verið að skamma mig fyrir það.
Ég ætla að stikla á stóru í gegn um sumarið, stóru stelpurnar okkar Elena Dís og Karólína fóru til
Íslands fyrir um mánuði að hitta sitt fólk á meðan við Sigurgrímur vorum eftir með gaurinn okkar hana Maríu Ísól.
Sigurgrímur er að vinna á fullu uppi í skóla og er að undirbúa kennsluna fyrir næsta ár og gengur bara vel hjá honum.
Elena Dís fékk inngöngu í Konunglega Danska Ballettinn í vor og var sú eina sem komst inn á öllu suður Jótlandi. Það kom grein um þetta í 4 dagböðum hér í
Danmörku, ein í Þýskalandi og síðan auðvitað grein um hana í Fréttablaðinu bæði um ballettinn og svo myndatöku sem að hún og Arndís Erla Örvarsdóttir fóru í saman hjá Ítalska Vouge.
Jájá ég er geðveikt montin, hvað getur maður sagt........ hún er snillingur.
Karólína er hjá mömmu sinni á Íslandi og eflaust búin að koma öllum á óvart hversu stór hún er orðin. Við fréttum af henni á bryggjuhátíðinni á Stokkseyri og svo er hún búin að vera hjá ömmu Jónu líka.
María Ísól verður held ég bara fyndnari með hverjum deginum sem líður. Hún er búin að finna sér ömmu og afa á svæðinu sem að henni þykir voðalega gott að fara til og fá köku og fær stundum að gista.
Hún talar ótrúlega mikið næstum "non stop" frá því hún vaknar þar til hún sofnar. Hún er ALLTAF brosandi og kát. Hún hefur mikinn húmor og það er ekkert eins fyndið eins og þegar við foreldrarnir reynum að lesa á dönsku fyrir hana. María Ísól hefur sterkar tónlistar skoðanir og sterka rödd sem fylgir vel með þeim. Hún verður 2 ára í næstu viku og elskar Dóru landkönnuð, Klossa og Nappa.... hún vill fá Nappa-köku í afmælisgjöf.
Ég er svo að byrja í fatahönnun núna í haust og er voða spennt. Ég hafði hugsað mér að fara í þetta nám í fyrra en ákvað að bíða í ár á meðan við vorum öll að tjúna okkur saman og venjast lífinu hérna í Danmörku og ná góðum rithma. Síðastliðið ár hefur verið yndislegt í alla staði og allar ákvarðanir sem að við höfum tekið hafa verið hárréttar á hárréttum tíma. Stelpunum hefir gengið ótrúlega vel í skólanum og lífinu hérna, Sigurgrími gengur vel í skólanum og við kennsluna og María brillerar í þroska og glaðlegheitum.
Núna erum við svo að flytja inn í Sönderborg í stórt og fínt hús sem rúmar okkur aðeins betur, nær skólum og vinum. :)
Við erum búin að eiga yndislegt sumar, liggja á ströndinni, slappa af og nóta þess að vera bara 3 og stundum 2 plana haustið og veturinn og hafa það kósí.
Það eru til afar fáar myndir af okkur fullklæddum, svo það verður bara að hafa það, við erum eins og við séum að breytast í nudista Þeir sem vilja geta síðan farið á facebook og séð hundruði mynda í viðbót af okkur hálfnöktum eins og vanalega.
Í næstu viku byrjar svo allt á fullu, stelpurnar koma heim, skólarnir hjá okkur fara að byrja og flutningarnir fara í gang. Amma Jóna er að koma og ætlar að vera hjá okkur í viku, það verður voða gott að fá hana og sýna henni bæði húsin.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 10:36 | Facebook
Um bloggið
Hugmyndir, tíska, fjölskyldan og fleiri fíflalæti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er svo gaman að lesa bloggið þitt þú ert snillingur, gangi ykkur vel að flytja og hlakka til að sjá hvað þú ferð að hanna :)
Berta (IP-tala skráð) 6.8.2010 kl. 10:53
Elsku Tinna mín, ég samgleðst ykkur svo innilega með lífið í Sönderborg, þetta var góð ákvörðun að drífa sig út, hamingjan skín af ykkur og ég óska ykkur áfram alls hins besta. Guð geym
Ásdís Sigurðardóttir, 6.8.2010 kl. 12:02
Skemmtilegt blogg hjá þér Tinna. Sjáumst á eftir :)
Helga Pé (IP-tala skráð) 6.8.2010 kl. 12:37
Gaman að fá svona update af lífinu hjá ykkur og greinilegt að þið blómstrið öll þarna úti. Þú lítur svo vel út Tinna mín sá myndir af þér um daginn á facebook og þú bara geislar :) Bestu kveðjur frá mér og strákunum.
Sandra Lóa Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 6.8.2010 kl. 15:05
Frábært að lesa þessa færslu og ennþá skemmtilegra að sjá allar myndirnar :) Frábært hvað allt gengur vel hjá ykkur, eigið það svo sannarlega skilið ! Líst vel á fatahönnun Tinna, það er ekki eins og þú hafir dressað okkur allar í den :)
Knús á línuna C",)
Hjördís Ósk (IP-tala skráð) 7.8.2010 kl. 00:40
Frábært að fylgjast svona með ykkur í gegnum síðuna og facebook. Ég væri líklega búin að tapa mér ef ég hefði ekki þennan aðgang að ykkur. Takk fyrir að vera svona dugleg að uppfæra síðuna, það er alltaf gaman að lesa það sem þú skrifar, hefur svo skemmtilegan frásagnarmáta.
Knús frá mömmu.
Agnes Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 8.8.2010 kl. 23:58
yndislegar myndir og maður sér hamingjuna skína af ykkur :)
Eyrún Ösp Ingólfsdóttir, 16.8.2010 kl. 00:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.