23.7.2009 | 17:51
Hér er voða tómlegt!
Við erum bara búin að vera bara 3 heima á meðan stóru stelpurnar okkar eru á Íslandi sem er oft voða gott, en mikið erum við farin að sakna þeirra. Karólína kemur eftir viku og Elena Dís eftir tvær, við fáum líka húsið eftir viku svo að eftir svona 2-3 vikur verður vonandi allt komið á betra ról hjá okkur.
Ég skrapp til Flensburg í vikunni með Sellu ( Sellu úr Víðó ) það var voða skemmtilegt, ég er ekkert farið að ryðga í þýskunni... ó nei , nema hvað ég hitti dónalegustu konu í HEIMI þar og var að því komin að fara að segja við hana hversu dónalega mér fyndist hún vera, þegar ég fattaði ég kann ekkert að segja orðið "dóni" á þýsku. Annars nýtist þýskan mér vel hérna, hér tala flestir Danir þýsku svo að ég get bjargað mér þannig. Konan á jobcenter var amk ánægð með það.
Hér er búið að rigna nánast síðan við komum svo að planið um að liggja alla daga á ströndinni er að fara um þúfur ...... annars erum við bara að fara að byrja að pakka niður .... aftur ... svo að við getum byrjað að taka upp úr kössum.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Hugmyndir, tíska, fjölskyldan og fleiri fíflalæti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gott að allt gengur vel, þið hafið gott að því að vera án stelpnanna um tíma, það er svo gaman þegar allir koma svo heim á ný. Kær kveðja
Ásdís Sigurðardóttir, 23.7.2009 kl. 21:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.