Frábært hjá honum

Enda líka snillingur..... hann er alveg yndislegur.

1336_by_nico_muhly  

 

En svona af því ég er komin inn á mbl.is...

Stjörnuspáin mín í dag...

 

Fiskar

Fiskar: Eitthvað sem fiskurinn þráir virkilega verður að veruleika. Athygli þín beinist að heimili og fjölskyldu og það verður gaman hjá þér.

 Ætli við finnum hús í dag?... Joyful


mbl.is Nico Muhly með tónlistina í The Reader
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Komnar í snjóinn

lítil í flugvél

 

í fríhöfninni

 

 

 

 

 

 

 

 

Þá erum við komnar heim í snjóinn. Ferðin heim gekk vel hún var eins og hugur manns stelpu rófan á leiðinni. Við stoppuðum í Köben á leiðinni heim kíktum aðeins á Strikið og svona.  

 

Mikið voðalega var gott að koma til hennar Elenu Dísar, hún stoppaði nú ekki lengi heima samt, er farin aftur upp í sveit á hestanámskeið. Hún er orðin voðalega dugleg á hestbaki á henni Slaufu sinni(sem amma á) komin með sinn eigin hjálm og í nýjum reiðstígvélum og reiðbuxum  með allar græjur.

 

Elena á slaufu jan09

 

 

 

 

 

 

 

 Hér er eu svo María Ísól og Bogey að leika sér.....  

 

María Ísól og Bogey að leika jan 09María Ísól og Borgey jan 09

 


Mikið voðalega er gaman að versla.....

fínir skór

... er búin að kaupa smá skó, enda líka farið að stórsjá á skónum mínum eftir alla þessa göngu hérna, hælarnir spænast upp, og já ég fer allt á hælum - ég hef ekkert að fara sem ég kemst ekki á hælum.... og hana nú. Annars eiga strákarnir sem montna sig alla daga á að fara um allt á sínu eigin afli í mestu vandræðum með að halda í við mig. Hehe þar kemur aldur og "óform" sterkt inn..Karólína er orðin aðeins betri af flensunni, Sigurgrímur frekar lélegur, flensa í öllum húsum og María Ísól með hor svo að við höfum nú ekki farið mikið út á meðal fólks meðan við erum hér. En við höfum það nú samt voða kósí og ákaflega notalegt hérna, ég er bara að vona að litla María smitist ekki og verði ekki lasin í fluginu á leiðinni heim..

 

 

 

Ég þikist vera eitthvað að læra er ekki nógu dugleg... þjáist af athygglisbrest, allt í einu fæ ég kick út úr því að fara að laga til og pússa hluti í stað þess að læra.  Ekki nógu gott. 

jan09 052Copy of jan09 061jan09 022jan09 011Copy of jan09 006

 


Bad hair-day í orðsins fyllstu...

jan09 020

 

Minn stærsti óvinur í útlöndum er hárið á mér. Það virðist vera ógerlegt að ná því eðlilegu og múnderingarnar sem ég vakna með á morgnana eru "töff" eins og svo margt annað.... eða ekki.

Ekki nóg með að vakna svona eins og hænurass upp í vindinn - heldur var vatnslaust þennan dag til kl 14:00 .... CRAP!   

Sjá myndband..... hehe, hér er ég að setja inn sjálfviljug myndskeið af mér nývaknaðri á netið, uss.... 

 

 

 Við erum búin að vera mikið heima, Karólína er búin að vera lasin greyið en ég slapp út í dag og eyddi hellings pening á útsölunni í HM. Woha!!!Heart Elena mín á von á góðu í þetta skiptið.InLove 

 

 Maríu Ísól er að fara ótrúlega fram í tilfærslum sl daga og er hún komin uppá 4 fætur núna og við það að komast á skrið, hún gerir bara armbeygjur á tánum inn á milli. Ótrúlegur kraftur í henni stelpu rófunni. 

jan09 053jan09 052jan09 032jan09 045

 

 

 

 

 Danmerkur albúmið stækkar og stækkar.


Komnar til DK

MAría dk 5mán

Við mæðgur erum loksins komnar til Danmerkur. Ferðin gekk ótrúlega vel og litla krúttið var að njóta sín í botn á leiðinni. Hún bara brosti og hló alla leiðina og fór ekki einu sinni að gráta... algjör draumur í dós. Fluffurnar fengu hana meira að segja lánaða til að fara montferð um vélina. Það þarf ekki að taka það fram hversu ánægð hún var að hitta pabba sinn aftur, þið rétt getið ímyndað ykkur brosið, á báða vegu. InLove

með steplurnar

 

 

Hér er ískalt miðað við Ísland og ég mæli ekki með að pakka niður með svefngalsa, því einhvernvegin tókst mér að pakka helling og nóg af öllu  ma. 4 hlýraboli en enga hlýja peysu. Pinch

 

 

 


Lífið heldur áfram

Þegar mikið er að gera gleymir maður oft að setjast niður og blogga, en smá update.......

 

TannlausFyrst og fremst...... Elena Dís missti sína fyrstu tönn eftir margra ára bið, þetta var stórmerkileg stund og henni verður seint gleymt. Tönninni var troðið strax undir koddann í von um að fá 100 kall í tannfé frá Tannálfinum (sem kom víst ekki til lífs fyrr er um 1985 og engin hafði frétt áður að slík skeppna væri til). Tannálfurinn eldist greinilega hratt því þegar hann var að koma 100 kallinum fyrir, fann hann ekki tönnina og krakkinn vaknaði, HIMINLIFANDI yfir að hafa fengið bæði peninginn og fengið að halda tönninni AKKÚRAT ÞEGAR MAMMA VAR AÐ KYSSA HANA GÓÐA NÓTT... FootinMouth 

María Ísól er orðin 5 mánaða og farin að sitja og skríða afturábak, veltir sér þangað sem hana langar og hefur ægilegan háfaða. Hún er eins og áður voða dugleg og glaðlynd alltaf. 

Elena Dís er svo komin upp á næsta stig í fimleikunum og farin að gera flikkflakk hjálparlaust..... 2tennur MÍS 5 mán ehemm -  hjálpi mér, ég fæ hjartaáfall!!! W00t

Ég er byrjuð á fullu í skólanum og er að taka mikið meira en upphaflega var ætlunin, svo mig vantar núna nokkra klukkutíma í sólarhringinn, ef einhver á svoleiðis þá væru þeir vel þegnir.... ekkert meira barneignar "frí" hér á þessu heimili.......

Sigurgrímur og Karólína eru farin aftur til Danmerkur og við María Ísól erum á leiðinni út að fara að heimsækja þau. Það verður æðislega gaman að hitta kallinn aftur og fá ærlegt knús frá stóru systur. Á meðan verður Elena Dís heima með Ásgeiri. Það verður bara voða kósí hjá þeim feðginunum hérna heima og þau geta notið þess að vera bara 2 saman áður en hann fer aftur til Kína .  

 


Svona 90' fílingur

Það er einhver 90 púki í mér þessa dagana....... enn eina ferðina. Ég var að skanna inn gamlar myndir í tölvuna mína. Setti þær í albúm "gamlar myndir"og er með Guns N' Roses og Poison í botni.
 
Copy (2) of MM 1994 bonni 5 
Hér er ég td. betur þekkt sem TinnaCool.
 
 
Ég er búin að setja inn gestabók,, svo nú er hægt að hætta að skamma mig fyrir það. 
Þið verðið þá að kvitta.
 
Copy of MM 1994 bonni 4Copy (3) of MM 1994 bonni 4Copy (2) of MM 1994 bonni 4MM1992 bonni 1

Evil svipurinn

Var að finna þessa mynd......

Við ÖrvarOkt08 2853


Kveðja

Þá eru að baki eftirminnileg jól. Það hefur mikið gerst á stuttum tíma, stórar ákvarðanir teknar, mikil gleði og mikil sorg. Hann Indriði vinur okkar kvaddi þennan heim á aðfangadag og var svo jarðsungin í gær á síðasta degi jóla eftir stutta baráttu við krabbamein.

Furðulegt hvernig lífið tekur krappar beygjur snögglega og allt í einu er þetta búið. Það er ekki nema ár síðan hann var með munnangur og svo nú er hann bara farin. Fær mann til að hugsa sig tvisvar um og meta lífið betur enn eina ferðina. Mér finnst svo stutt síðan Guðni Már fór en hann tilheyrði einnig sama vinahóp. En svona er víst lífið, maður verður að kveðja þennan heim einhvertímann.....

Skrítið hvernig þetta raðast niður, nú hef ég fylgt fleiri ungum vinum og kunningjum til grafar en öldruðum ættingjum. Kannski er það af því að "gamla" fólkið í minni fjölskyldu er svo ungt að það er engin á leiðinni neitt eða að þetta sé ólukka minnar kynslóðar. Að jarða vini sína og kunningja að meðaltali annaðhvert ár frá 17 ára aldri er ekki eftirsóknarvert. Það þroskar þó sálina og gefur lífinu meira gildi.

 

Indriði Ingi Styrkárson

 

Indriði var einn af þessum "gömlu" traustu vinum sem við héngum heima hjá svo tímunum skipti og hlustað á LIVE og Pearl Jam þegar við vorum unglingar. Gamlir vinir eru þeir dýrmætustu sem maður á, því þar liggur svo margt að baki.  Ég rak upp sór augu þegar ég kom heim til hans í fyrsta skipti því að húsgögnin og skraut munirnir voru þeir sömu og heima hjá mér, það kom svo í ljós að mamma mín og pabbi hans hefðu verið að fljúga saman og þróað með sér svipaðan smekk á innanstroks munum.  Hann tilkynnti mér að Díana prinsessa væri látin og sat við hliðina á mér þegar eyrað af Hollyfield var bitið af. Og við vinkonurnar komum ekkert síður til að spjalla við Lailu mömmu hanns Indriða en strákana. Það er ótrúlegt með þessa vini hvað þeir hafa haldið alltaf vel saman og 94" þegar Berglind vinkona byrjar með Atla sínum fékk hún ekki bara einn kall heldur 3,  Begga og Inda líka. Ekki slæmur pakki þar. Þau hafa staðið saman eins og klettar í gegnum súrt og sætt og þurft á stuðningi hvors annars að halda í gegn um tíðina.

Berglind samdi þessi ljóð um hann Inda sem ég ætla að fá að birta hérna, því ekki var hægt að birta þau með minningargreininni í Morgunblaðinu.

 

Sakna þín:

Þegar lífið frá manni tekur,
góðan vin, er spurt hver er sekur?
svarið, það aldrei kemur,
háð er barátta enn fremur.

Ég mun ávallt sakna þín,
en ánægjan var öll mín.
Að fá að vera vinur þinn,
heiðurinn var allur minn.

 

 

Þú kveður:

Það er þögn ekkert heyrist,
nema hjartað berst um í brjósti mér,
tárin falla niður,
þú kveður,
alltof fljótt.

Það er logn og ekkert bærist,
nema hjartað að brotna í brjósti mér,
Tárin hrynja niður,
þú kveður,
alltof alltof fljótt.

þú varst þreyttur og fékkst að sofna.
Góða ferð og góða nótt.

Berglind Magnúsdóttir

 

 

 

 


Gleðilegt ár gott fólk!

 

2008/2009

 Þá er 2008 loksins lokið og 2009 tekið við. Wizard Margt hefur gerst á þessu ári og má vel segja að þetta hafi verið bæði eitt það erfiðasta og ánægjulegasta ár sem ég man eftir. En koma Maríu Ísólar í þennan heim stendur tvímælalaust upp úr enda mikill gleðigjafi hér á ferð. Og held ég að allir geti tekið undir með mér.
Það besta við áramót er að einum kafla í lífinu líkur og annar skemmtilegri og meira spennandi tekur við. 

 Elena Dís, María Ísól, KarólínaElena Dís, María Ísól, KarólínaElena Dís, María Ísól, Karólína

Elena Dís, María Ísól, KarólínaElena Dís, María Ísól, Karólína. KnúsElena Dís, María Ísól, Karólína

  Við erum mikið  búin að vera bara 3 heima og hafa það kósí og notalegt hérna ég, Sigurgrímur og María Ísól á meðan Karólína er búin að vera hjá mömmu sinni og Elena Dís hjá pabba sínum í jólafríinu. En þeir dagar sem við erum öll hérna saman eru auðvitað langskemmtilegastir ansi fjörugir og mikið leikið. Örvar bróðir er líka búin að vera í bænum með öll sín börn yfir áramótin og var þetta í fyrstaskiptið í langann tíma sem að öllum hópnum var smalað saman.  

krakkarnir
 
Elías Bessi, Sveinn Andri, Nanna Líf, Karólína Ingibjörg, María Ísól, Elena Dís, Gunnar Sindri og Arndís Erla
 
 

Elena Dís / Bella1.jan

 

 

 

 

The ring

Svo er þessi líka fíni fídus á myndavélinni, ég verð að setja inn nokkrar svoleiðis með Cool

Elena,Arndís,KarólínaElena Dís, María Ísól, KarólínaMaría Ísól 4 1/2  mán

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hugmyndir, tíska, fjölskyldan og fleiri fíflalæti

Höfundur

Tinna
Tinna
Fata & búningahönnuður búsett í Danmörku með dætrum mínum 2

Nýjustu myndböndin

Jógúrt

Uppi á svölum

María Ísól 9 1/2 mánaða

Nýtt bragð

taka upp úr töskunni

Nýjustu myndir

  • Öskubuska
  • Öskubuska sæta
  • Yasmin
  • Rapuntzel
  • Rapuntzel sæta

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband