Ef þetta væri raunin....

 
Væri lífið auðveldara.

Jólin

Mikið að gerast, mikið að jólast, mikið af myndum.

 Sigurgrímur og Karólína eru komin heim yfir jólin og við höfum það bara voða kósí.

desember 2008 104desember 2008 112desember 2008 117desember 2008 136desember 2008 130desember 2008 222desember 2008 164desember 2008 165desember 2008 097desember 2008 299desember 2008 323desember 2008 309desember 2008 313


Nú styttist ....

.. í jólin og ekki nóg með það heldur heimkomu feðranna líka.......... það verður ss meira en nóg að gera hjá mér um jólin. Það er svona, annaðhvort allt eða ekkert. 

María Ísól er lasin litla skinnið í fyrsta sinn og ég veit ekki hvor er aumari hún með hita, hor og tár eða ég að horfa á hana og vorkenna henni.  Frown En hún lætur það svo sem ekkert slá sig út af laginu og skelli hlær og spriklar eins og vanalega. Hún er hörkutól litla skottið og er búin að fatta það að ef hún er í göngugrindinni sinni þá kemst hún þangað sem hún vil og stendur eins og hinir..... og það er ekki leiðinlegt. 

Svona lítur María Ísól út lasin.... hehe litla kúttubollan

Jólasveinarnir eru byrjaðir að leggja leið sína hingað á Miðnesheiði og eru vel fóðraðir af smákökum og mjólk af Elenu Dís, þeir eru vægast sagt hrekkjóttir í ár og er ég iðulega vakin upp kl 4-5 á nóttunni til að fá jólasveinafréttir. Mér til mikillar gremju því að litla múslan sofnar ekki fyrr en milli kl 3 og 4 á nóttunni. Geisp!!

 En jólasveinar eru víst næturdýr og jólastelpur greinilega líka. Happy

jólastelpurjólastelpur

 

 

Jámm hér verður allt fullt af jólasveinum þessi jól.........


Jóólaaaaa, jólajóla,,,,, jólaaa....

Þessi auglýsing syngur í hausnum á mér stanslaust alla daga........... er að verða crazy.. eða frekar þeir sem umgangast mig. Jóólaaa jólajóla......

 

24 30 nóv 062

 

 Við erum ss bara að jólast mæðgurnar þessa dagana, ég er svona næstum búin með jólagjafainnkaupin í ár, ótrúlega snemma í þessu öllu. Sem er eins gott því núna eru bara allir dagar framm að jólum að verða upp bókaðir, þetta er nú meira prógrammið í desember.  Við Elena erum að undirbúa fimleikasýninguna næstu helgi, vorum að gera drekann og svona í dag  - eða komnar vel á veg með það meistarastykki. Hún vara að keppa í Ármannsheimilinu þar síðustu helgi og stóð sig eins og hetja, gat allar æfingarnar á slá og tvíslánni og gerði þær vel - ég þarf ekki að minnast á gólfæfingarnar Grin 

desember 2008 018  

 

María Ísól syngur bara og syngur, aðeins verið að prufa þessi fínu raddbönd sem hún er með - svona rétt á meðan hún frussar ekki. Hún er komin með 2 tennur og bítur þann sem stingur fingrunum upp í hana eða kemur með hendur nálægt munninum á henni eða bara þann sem hún nær í. Henni finnst amk. gaman að Jóla jólajóla...Jóólaaa-jólajól. Og skellihlær þegar það er sungið fyrir hana. Annars er alltaf stutt í hláturinn hjá henni - hún er ótrúlega glaðlint barn.

 

 

2 tennur 3 1/2 mán

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og svona til að uppfæra ykkur í útlegðinni þá er Jóólaa... jólajóla .....


 Þessi færsla var í boði Vodafone


Hafmeyjumyndbandið

Jæja þá er myndbandið við "Heard It All Before" til. 

 

Þetta verkfall mitt stóð nú ekki lengi yfir, hehe. Safnaði 180 undirskriftum eða........ 3 Shocking  


Verkfall

Ég er í bloggverkfalli.

Skrifa ekki staf fyrr en ég er komin með amk 180 athugasemdir Tounge. Er hætt að taka við commentum á msn. 

Hingað líta við að meðaltali 20 á dag og enginn kvittar fyrir sig.........hvað er þetta.

24 30 nóv 069


Littlewoods auglýsingin

 Littlewoods auglýsingin er komin út. W00t

Hér er linkur yfir á síðuna þeirra:  Littlewoodsdirect.com

 website littlewoods

Og hér er "behind the scenes" myndband.

 Og hér er svo auglýsingin sjálf.

Í þetta fór 2 daga upptaka, hehe. En hún er þó sýnileg og þekkjanleg þarna. Mér sýnist flestir hinir krakkarnir hafi verið klipptir út, Woundering svekkjandi.


Litli snillingur.. hún gat það!

Litla Ísólin velti sér yfir á magann í fyrsta skipti í dag. Það eru ótrúleg tímamót þegar maður er bara 3 mánaða og 4 daga.... (meðal aldur fyrir svona afrek er 5 mánaða) dugleg stelpa sem að ég á hérna. Ingibjörg langamma varð vitni að þessm merka atburði þegar við vorum heima hjá henni að drekka te.  Auðvitað náðist þetta svo á myndband þegar við komum heim (eins og allt annað). Smile

 


 

 Svo var áreynslan svo mikil á magavöðvana að eitt prump slapp hjá henni.... merkilegt hvað pínu ponsu krúttlegir bossar geta verið úldnir.Woundering
Í enda myndbandsins má heyra "úff" í mér þegar lyktin gýs upp.

 

P.s
Það er bannað að gera grín af mér þegar ég tala inn á myndbönd.


Hér er alltaf...

mikið að gera, Elena Dís er byrjuð að æfa stíft aftur fyrir næsta mót sem verður þarnæstu helgi í Ármannsheimilinu - Aðventumót Ármanns. Svo er hún líka byrjuð að undirbúa fyrir jólasýninguna sem verður 14. des........ og þema sýningarinnar er ...... Kína. Sú var ánægð - því að hennar mati er hún hálfgerður Kínverji - "Á sko 4 Kínakjóla"

Halo Hún bauðst bara til að koma með dæmi um hvernig Kínverjar eru og einhvernvegin.... þá endaði ég í sjálfboðavinnu við að hjálpa við að undirbúa þetta og ma. að sauma stórann Kína-dreka ....... hvernig sem það er gert.Shocking

3 mán úti
 

Um daginn var foreldraviðtal í skólanum, það var auðvitað ekki að spyrja að því, hún er alveg eins og engill, kennararnir dýrka hana og hún knúsar þá alltaf reglulega yfir daginn.InLove  Enda er hún mikið knúsudýr. Hún er enn framúrskarandi í náminu, þessa dagana er hún að lesa þá frægu bók Benjamín Dúfa - sem aukalestur með lestrarbókinni (rosa löng bók).  Svo þegar bókin er búin þá ætlum við að taka myndina á leigu.


María Ísól 13 vikna, litli frændi 6 vikna, Elena Dís 7 ára og 1 vikna


María Ísól er 3 mánaða í dag og fór í sprautu í morgun, hún var nú ekki sátt við þennan kall og risa skeifa kom á litla andlitið þegar hann var búin að reka sprautuna á kaf í lærið á henni. Crying Ég sé hana tútna út, hún er komin með rosa mjúk bollu læri og svona, er líka orðin tæp 5,8 kíló. hehe

Við kíktum á Ingibjörgu frænku í gær og litla kallinn hennar og smelltum nokkrum myndum af honum. Hann er algjört krútt. Enda ekki langt að sækja Joyful... *mont* 

Og svo á vefsíðunni www.bb.is   er að finna þessa flottu mynd af honum Sveini Andra Örvarssyni á Rósaballinu á Ísafirði. Stoltari svip hef ég ekki séð lengi, enda myndar stúlka með honum þarna ...... yeh ! hehehe.

 

Sveinn Andri og frk

 

 


Morgunstund gefur gull i mund

 Ég hef nú aldrei talist sem morgun manneskja, og er oftast voðalega þreytt á morgnana - ekki í vondu skapi - langt því frá, en ofsalega lengi afstað og ekki úber hress eins og sumt fólk.

pæja í kringlunniEn morgnarnir eru svo skemmtilegir, Elena Dís vaknar alltaf brosandi og hefur alltaf gert - ég man ekki eftir einum morgni sem hún var ekki í góðu skapi  og brosandi síðan hún var lítil, og nú virðist sem María Ísól sé svona líka, hún brosir allan hringinn þegar hún vaknar á morgnana. Þær tvær saman kl. 7 er bara gaman. InLove Kannski er það hálftíma kúrið sem við tökum milli kl 6:30 og 7:00 sem að kemur okkur afstað inn í daginn, eða söngurinn hennar Elenu, eða kaffið sem ég helli uppá fyrir Sindra og drekk svo allt sjálf W00t, en allavega hef ég ekki verið svona hress fyrir hádegi síðan.......... ehemm aldrei.

Við Elena Dís fórum í bæinn um síðustu helgi að versla fyrir afmælispeningana hennar og hún mátti kaupa það sem hún vild. Skvísuföt og barbie, þarf að segja meira(hún var sko stoppuð í kringlunni af ókunnugri konu því hún var svo flott klædd).Joyful

 

Krafturinn í litlu Ísólinni er ótrúlegur.... svona er hún eftir smá stund á gólfinu... híhí

12 vikna gólfæfingar12 vikna gólfæfingar 12 vikna12 vikna


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hugmyndir, tíska, fjölskyldan og fleiri fíflalæti

Höfundur

Tinna
Tinna
Fata & búningahönnuður búsett í Danmörku með dætrum mínum 2

Nýjustu myndböndin

Jógúrt

Uppi á svölum

María Ísól 9 1/2 mánaða

Nýtt bragð

taka upp úr töskunni

Nýjustu myndir

  • Öskubuska
  • Öskubuska sæta
  • Yasmin
  • Rapuntzel
  • Rapuntzel sæta

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband