Nýtt bragð !

Það er gaman að bragða nýjan mat, eins og sveppasúpu........ ekki bragðið sem var verið að búast við, en vil samt meira.LoL

 (Komin betri gæði af myndbandinu en áður Pinch )

 

Síðan eitt frá því í vikunni. Allt í einu heyrðist ekkert...... það er ávísun upp á að eitthvað er verið að bralla.

 


Hann á afmæli í dag......

Hann Sigurgrímur minn.Wizard

afmæliskall 

 

Stelpurnar gáfu honum þennan líka rosa fína cowboy hatt í afmælisgjöf... völdu hann sjálfar og allt. Við héldum upp á daginn í síðustu viku þegar við vorum úti, og núna situr hann sveittur og lærir fyrir stærðfræði próf . 

 

Og svo er það tilraunastarfsemi dagsins... verkefnið "Rugguhestur" og hvað maður gerir við svoleiðis hluti.

 

 
 
 

 

 


Tvífarar dagsins

snúður2Copy of snúður

 










 






María Ísól og litli bangsinn sem hún vann í tívoíinu. 


Vondikallinn er alltaf hot :)

Sætur InLove
 
 
Það var eitthvað klikk í videoinu, en nú er búið að laga það.

Litla rófan

Það er eitt sem að kemur henni Krúttfríði Sigurgrímsdóttur alltaf í gott skap, og það er að standa sjálf. Og ef það er ekkert til að halda í, þá heldur maður bara í bumbuna sína. InLove  Hún er orðin ansi brött í þessum æfingum sínum stelpu rófan. 

 

 

mai2009 464

pabbastelpa

mai2009 455Við erum búna að vera að njóta veðurblíðunnar mæðgurnar á meðan Karólína og Sigurgrímur eru í skólanum, það er ekkert leiðinlegt í sólbaði.Cool 

mai2009 471 mai2009 472

 

mai2009 468mai2009 526

 


mai2009 517mai2009 513mai2009 530

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég fór með stelpurnar að skoða Sönderborg Slot á uppstigningadag og mikið rooosalega skemmtu þær sér vel í prinsessu leik - í alvöru höll. 


Svo fórum við í bæinn, skelltum okkur á ströndina keyptum okkur ís, kíktum á kallinn í skólann þar sem hann situr sveittur að undirbúa annarverkefnið sitt sem  mér sýnist ganga súper vel, Happy og svo að lokum fórum við á markaðinn hjá carnivalinu og keyptum cowboy hatt í afmælisgjöf handa gamla manninum sem verður 35 ára í næstu viku. Wizard

 
 
mai2009 541
 
Við Sigurgrímur erum búin að finna okkur æðislegt lítið einbýlishús á algjörum draumastað, sem að við erum nokkuð viss um að við tökum. Þannig að nú get ég farið að anda rólega og farið heim að pakka niður.  
 
Ég set mynd af götunni með (sem er vistgata) og svo eru komnar hellingur af myndum inn í Mai albúmið . 
fína húsið
 

Erum enn í baunalandinu.

Og ekkert á leiðinni heim á næstunni, hér er allt of gaman. 

mai2009 433

Englarnir okkar

mai2009 429

 Við erum á kafi í húsnæðisleit þessa dagana, og framlengdum dvölinni okkar dálítið. Það gengur svona upp og ofan að finna hús, vorum komin með fína 190 fm íbúð sem gekk svo ekki upp þegar allt kom til alls. GetLost En þetta lofar allt samt sem áður góðu. Við verðum komin með fínt hús eftir stutta stund. 

mai2009 412

Á miðvikudaginn opnar hérna Cirkus og Tívolí, við tókum smá forskot á sæluna við Elena Dís og fórum og skoðuðum pónyhestana og asnana - þó ekki fallega litríka pónyhestinn hana Karólínu og asnann hann Sigurgrím Joyful heldur rákumst við á alvöru dýr sem verða í "petzoo" ef maður má sletta svona.  

 

Maí albúmið stækkar og stækkar..

 

 

 

 

olafur eliasson verk sonderborg
 
Í skólanum hans Sigurgríms gnæfir þetta verk eftir Ólaf Elíasson yfir hálfan skólann. 
 
bara töff í almenningsgarðinum
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
mullettarnir

 

 Hér er myndavélinni beint að "mullet" fjölskyldunni á bakvið okkur, smart hehehe 

  

 


Nýr leðurjakki ;)

 
 
 
 
 
 

 

 mai2009 392

 

             í júróvision afmælis-partíi hjá Gunna.                  

 

 


Karólína 7 ára

Karólína 7 ára

Við héldum upp á afmælið hennar Karólínu í sólinni í gær. Grilluðum pylsur borðuðum prinsessukökur og bleikar muffins, það er sko ekkert mál að halda 17 manna veislu í 50 fermetrum. Bjóðum bara gestunum út í blíðuna, það eina var að kertin loga ekki svo glatt í sumargolunni. En það er allt í lagi þegar maður er mjög spenntur að bíða eftir kökunni sinni. Wizard

 

Afmælisgestir

 

sætu stelpurnar okkarDagurinn heppnaðist mjög vel, svo fóru allir afmælisgestir í leikinn "finnum skóna hennar Karólínu" hehe því þær skotturnar þessar ljóshærðu í gulu kjólunum voru með vesen og þurftu endilega að skipta um skó í miðju afmæli og á endanum tíndust spariskórnir hennar Karólínu. Grin

 AfmælisveislaAfmælisveisla

Ísólin Afmælisveisla

 

Ísólin litla vaknaði svo sólbrún í vöngum og með HÂR á höfðinu, móður sinni til mikillar hamingju. Ég get svo svarið það að það glitti í smá flóka á skallanum á henni ..... mjög snemma í morgun. 

 Læt fylgja með myndir af deginum sólríka.

Svo eru fleiri myndir Hér meðal annars af kallinum með maskara og fínerí,,,muha.

 

 

 

 á leynistaðLeynistaðurLeynistaðurLeynistaðurLeynistaðurAfmælisveisla


Nýtt númer

Myndarlegi maðurinn minn hann Sigurgrímur er að módelast niðri í bæ í einhverri myndartöku..... úúúú það verður gaman að sjá hvað kemur út úr því. 

Hann er ekki bar útlitið heldur mörgum kostum gæddur. Ekki nóg með að það hafi verið búið að bóna höllina og gera allt glansandi fínt, búa um nokkur auka rúm, kaupa mjúkan WC pappír og fylla ísskápinn og gera allt tilbúið fyrir litla kvennabúrið sitt. Heldur beið líka eftir mér danskt símanúmer (og nýr sími) í stíl við nýja númerið hans Sigurgríms. Kissing 

Nú erum við parið með eins símanúmer......InLove spurning um að fá sér flíspeysur í stíl.

img 5854  

Þetta er bakgarðurinn, séð af svölunum. Þarna einhverstaðar á bakvið tré númer 47 er leynistaðurinn góði. 


Sól sól sól

img 5907 

img 5929

 

Þá erum við mæðgur allar komnar í sólina. Það er búið að vera rosalega gott veður síðan við komum, Elena Dís og Karólína hafa varla sést inni. Þær fundu sér "leyni stað" sem er víst draumi líkastur - líðið rjóður með risastóru klifurtré og litlum trjádrumbum sem þær hverfa inn í heim ævintýranna.  Við skelltum okkur niður á strönd í gær og fundum falin rosa fínann yfirgefin íþrótta leikvang þar sem við lágum og sleiktum sólina.

img 5868

 

img 5921

 

 

Annars lentum við í þessu fína ævintýri líka þegar til landsins kom.  Ferðin gekk ótrúlega vel, stelpurnar eins og draumur nema hvað að við náðum ekki lestinni til Sönderborgar...... Svo ég var föst í miðborg Kaupmannahafnar á föstudagskvöldi kl að ganga 11 með 2 dauðþreytta krakka og farangur á við heilt sígaunaþorp. En við gerðum bara gott úr þessu og skelltum okkur á næsta hótel og fórum í prinsessu leik.

img 5793

 Elena Dís gjörsamlega missti sig þegar við gengum inn í herbergið, því fallegri stað hefur hún ekki komið inn á "hárþurrka í skúffuni, strauborð í skápnum, stærsta rúm í heimi og  meira að segja klósettpappírinn var með uppábroti" Eftir langan dag skelltu stelpurnar sér að prinsessu stíl í freyði bað á hótelherberginu fína og bað-hettan auðvitað notuð og þessir fínu bað-inniskór líka. InLove 

 

img 5822img 5800

Bessi afi gaf Elenu Dís pening áður en við lögðum afstað og honum var eytt í Build a Bear búðinni í Kaupmannahöfn, og fjárfest í bleika bangsanum Eygló. Þetta er skemmtileg búð, krakkarnir fá að búa til sinn eigin bangsa, fylla hann, setja í hann hjarta óskir knús og margt fleira, enda svo á að finna á hann föt. 

 

Ég setti inn helling af myndum í albúm merkt Maí Danmörk.  

 Og svo eitt myndband í lokin af áhugamanneskju um ryksugur.. 

 


Sokkaskrímslið krúttulega

Hehehe gat ekki annað en reynt að festa þetta á filmu.... 

Elena Dís að taka sokkaflóð heimilisins í gegn og litla sokkaskrímslið að trufla. Bandit

  

 Ena að öðru..... við erum á leð til Danmerkur allar saman til að halda upp á afmæli Karólínu og Sigurgríms og fá okkur smá knús.InLove 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hugmyndir, tíska, fjölskyldan og fleiri fíflalæti

Höfundur

Tinna
Tinna
Fata & búningahönnuður búsett í Danmörku með dætrum mínum 2

Nýjustu myndböndin

Jógúrt

Uppi á svölum

María Ísól 9 1/2 mánaða

Nýtt bragð

taka upp úr töskunni

Nýjustu myndir

  • Öskubuska
  • Öskubuska sæta
  • Yasmin
  • Rapuntzel
  • Rapuntzel sæta

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 142413

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband