Færsluflokkur: Bloggar
11.4.2008 | 00:23
Á einhver 200 lítra fiskabúr?
Þegar ég kom í heimsókn til mömmu og pabba um daginn blasti við mér frekar furðuleg sjón, baðherbergið þeirra var undirlagt af 2 risastórum skjaldbökum, þær svamla um í baðkarinu og satt að segja þá er mamma að missa sig yfir þessum óvenjulegu gestum og matar þær með rækjum, ormum og fersku niðurskornu grænmeti nokkrum sinnum á dag, reyndar hefur hún verið inni á klósetti að mata dýrin í síðustu 3 skipti sem ég hef talað við hana spurning um hvað þetta má borða mikið. Henni leiðist amk ekki.
Sindri bróðir fékk þessa sniðugu hugmynd um að fá sér skjaldbökur og það líka ekkert smá stórar - hann fékk skjaldbökurnar en á ekkert búr, svo að núna eru þær bara í baði.
Hann var samt sniðugur - því hann býr á Reyðarfirði og kemur ekkert í bæinn fyrr en núna um helgina. Hanahaha!
Hér með auglýsi ég eftir STÓRU búri svona 200 lítra, lampa og græjur svo að mamma og pabbi komist í skriðdýralaust bað bráðum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.4.2008 | 01:52
Allt svo fallegt og hvítt
Mér var litið út um gluggann áðan og dauðbrá því allt í einu er allt á kafi í snjó úti.
Ég hljóp út á svalir til að forða vorboðanum mínum sem ég hengdi út um helgina - sjálft hengirúmið það er ekki gert fyrir snjó aðeins sól og gott veður enda keypt í Brasilíu.
En viti menn hormónarnir eru loks farnir af stað og allt í einu finnst mér allt hvítt vera ofboðslega fallegt, ég brosti út að eyrum og táraðist að sjá þessa undur fögru drífu yfir öllu, rétt eins og um helgina þegar ég var að strauja sparidúkinn minn og nokkur koddaver - þvílík fegurð - þvílíkt rugl - ég varð eins og amerísk húsmóðir sem hafði poppað of mikið valíum. Kannski eru þetta amerísku áhrifin sem urðu eftir frá fyrrum íbúum eða blessaður sveppurinn í húsinu sem heldur mér á eylífar trippi, það er nú ekki slæmt að sjá fegurðina í þvottinum og brosa hringinn eftir að hafa sett koddaverin í "fallegan beinan bunka" í hilluna í þvottahúsinu. Annars horfði ég á Extreem makeover í dag og fór að grenja yfir fegurðinni og kraftinum í fólkinu sem þátturinn snerist um, ég hélt að þetta væri þáttur um hús og viðgerðir. Já það er gott að hormónarnir komist út og ég geti grenjað yfir fallegum amerískum hlutum og öllu sem hvítt er.
Annars fór ég í bumbutékk í dag, og það er allt í fínasta lagi ég er búin að þyngjast um næstum 4 kíló og gott ef barnið líkst ekki stórusystur sinni og sparkaði bara í ljósuna þegar hún var að mæla bumbuna. Annars er þetta barn aldrei kyrrt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.4.2008 | 02:16
235 Sveppaville
Jæja ég er að hugsa um að fara að reyna að blogga eitthvað hérna, ég var að lesa mbl.is í dag og rakst á þessa frétt og sá hvar maður kallaði þetta "Dæmisöguna ein fjöður fimm hænur" ég ætlaði að komment hjá honum en gat það ekki af því ég á ekki blogg - en hana nú - nú á ég blogg
Húsið sem ég er í er ss. undirlagt af þessum blessaða svepp dóttir mín er búin að æla núna í heila viku, svaf í 20 klukkutíma straigt og hósta í meira en mánuð, ég er búin að fara með hana 2 sinnum til læknis í vikunni - hún var greind með veirusýkingu og ertingu í hálsi og ekkert hægt að gera við því - sama greining og ég fékk fyrir stuttu þegar ég lá í rúminu í 4 vikur. Ég fór í nágrannatékk um húsið áðan og komst að því að það eru fleiri í húsinu með samskonar veiki.
4 íbúðir af 9 eru með þennan ræktanlega svepp sýnilegan (ég fór ekki í hinar íbúðirnar) og meira og minna flestir í húsinu búnir að vera veikir síðan flutt var inn. Ein fjölskyldan er flutt út því barnið þeirra er búið að vera mikið veikt síðan þau fluttu hingað og daginn eftir að þau fóru byrjaði barninu að batna.
Það virðist vera erfitt að fá greiningu og viðurkenningu frá Þróunarfélaginu að þetta sé til staðar og ef svo er þá efast þau um að þetta geti verið heilsuspillandi. Það eru margir enn á biðlista eftir að fá fagmann til sín en í dag frétti ég að það væru 37 íbúðir sem búið er að staðfesta að séu með þennan svepp - og svo er fólk eins og ég sem gerir ekki neitt nema röfla því inni hjá mér er ekkert sýnilegt enn - og lítið hægt að gera.
Upplýsingar um þetta er hægt að finna á www.husogheilsa.is Þar eru nefndar 86 tegundir af myglusveppum sem finnast í hýbýlum manna - mis hættulegar.
![]() |
Börnin veikjast vegna myglusvepps |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Hugmyndir, tíska, fjölskyldan og fleiri fíflalæti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar