Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
15.11.2010 | 01:41
Nóvember og Elena 9 ára
Elena Dís varð 9 ára um daginn og í tilefni dagsins skelltum við okkur í Funpark í þýskalandi og svo var haldið þrusupartý helgina eftir. Í ár var ekki haldið hrekkjavökuafmæli eins og sl 3 ár okkur Sigurgrími til mikilla vonbrigða en við redduðum því og héldum bara okkar eigin hrekkjavökupartý í staðin og fórum sem Tim Burton karakterar.
Lady Gaga var æði, við fengum fáránlega góð sæti alveg beint fyrir ofan sviðið svo að við sáum allt mjög vel. Við tókum bara litlu myndavélina með okkur og náðum mörgum góðum myndum af fröken Klikk eins og hún er kölluð á okkar heimili. Það má segja það þetta hafi verið þeir allra flottustu tónleikar sem að við höfum farið á ... þvílíkt show og flottir búningar.
Elena Dís sýndi sína fyrstu sýningu í dag með Elitegruppen og stóð sig mjög vel, svo er stór sýning í Nordborg á þriðjudaginn sem er alveg frábært því að þann dag kemur einmitt mamma til okkar svo að hún fær tækifæri á að sjá primaballerinuna okkar á sviði. Mamma verður í viku og svo verðum við samferða henni til Köben því Elena er akkúrat að fara á æfingu í konunlegaleikhúsinu með Den Kongelige Ballet á sama tíma ....... svo getum við farið að slaka á.
Spurning hvort það verði nokkuð slakað á fyrr en um jólin, ég var að fá annarverkefnið mitt sem á að vera tilbúið fyrir jól og það er meira en nóg að gera bara í því, og eins og alltaf mikið að gera hjá Sigurgrími í skólanum .. við erum farin að skipta okkur niður á hver fær að fara út og læra.
Annars ætlar Sindri bróðir að koma og ver hjá okkur um jólin og við erum rosalega ánæg að hann ætli að gera það .... María Ísól er samt spenntust af öllum af því að hún Á SINDRA!
5.10.2010 | 09:41
Nýjustu fréttir af Ulkeböldam 105
........ það er mikið framundan hjá okkur í "social" lífinu næstu vikur við erum að fara með stelpurnar á uppfærslu Peter Schaufuss á Rómeó og Júlíu ballettinum um helgina, þær eru alveg hrikalega spenntar yfir þessu og við foreldrarnir ekki síður.
Við eigum miða á bestu tónleika EVER.... enga aðra en Lady Gaga núna í haustfríinu og við höldum varla vatni öllsömul......... við fundum allt í einu tónlistarmann sem að ALLIR í fjölskyldunni fíla í tætlur og keyptum miða fyrir okkur öll (nema kálfinn hana Maríu hún er of lítil) þetta verður geðveikt.
Hrekkjavakan er á næstu grösum og stelpurnar eru byrjaðar að æfa sig að mála sig, hvora aðra og aðra krakka í hverfinu fyrir hana. Þær eru alveg hrikalega fyndnar þegar þær taka upp á því.
Kata litla kisan okkar tíndist við mikla sorg heimilisbúa, svo að við féllumst á að bjarga litlum sætum kettlingi sem fékk það þokkafulla nafn Pamela Anderson frá svæfingu. En nei viti menn 3 dögum eftir að Pamela litla kom inn á heimilið þá hringdi í mig kona sem hafði fundið Kötu greyið eftir 1 1/2 mánaðar fjarveru...... hún kom heim hrikalega stór og feit en ljúf sem lamb...... Þannig að einhvernvegin fórum við úr því að eiga engan kött (sem var í raun og veru ágætt) yfir í að eiga 2. En Pamela litla er alvegyndisleg. Kattarskömmin malar allan daginn sama hvernig farið er með hana. María Ísól er búin að eigna sér hana og sleppir henni ekki, hún er nánast alltaf með hana í fanginu og þær eru ákaflega góðar vinkonur.
Annars er allt gott að frétta af okkur fyrir utan að við erum enn að bíða eftir að fá að hitta litla drenginn hans Sigurgríms. Það virðist ganga mjög illa að tala við mömmu hans bara til að fá að sjá drengin, við erum að verða ráðalaus. En við vonum það besta, að hún taki við sér og leifi barninu sínu að fá að kynnast og umgangast föðurfólkið sitt eins og önnur eðlileg börn.
Við erum byrjuð á fullu í skólanum , mér finnst alveg hrikalega gaman í skólanum og tímar eins og fibre inviorment sem ég hélt að væru ægilega leiðinlegir eru alveg frábærir. Ég get varla beðið eftir að fara að byrja að gera eitthvað af viti .
Og svo svona í lokin nokkrar myndir...
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.9.2010 | 21:45
Sönderborg
Lífið hér í Sönderborg er komið í gang eftir sumarið og allt að falla í rútínu á ný. Hér í kring um okkur er mikið af Íslendingum og ótrúlega mikið af krökkum... til allrar lukku fyrir okkur þá eru þetta næstum allt stelpur eða um 17 íslenskar stelpur í sömu götunni.
Karólínu gengur mjög vel í skólanum, kennarinn hennar talaði um hvað hún væri dugleg og opin í tímum og hún er strax búin að eignast vinkonur í bekknum. Karólínu gengur vel í stærðfræði og er BEST í lestri í sínum bekk. Hún er búin að vera rosalega dugleg að lesa heima og við ákváðum að taka íslensku harðstjóra leiðina á lesturinn og láta hana lesa allt tvisvar (eins og kennt er á Íslandi) í stað einu sinni eins og gert er hér..... og viti menn hún er langt ... langt um betri en hinir krakkarnir í bekknum.
Þetta gefur henni mikið sjálfstraust í skólanum og hún gerir heimaverkefnin sín með
bros á vör.
Krakkarnir í hverfinu byrja að banka um hádegi til að spyrja eftir henni en þá er hún yfirleitt
í skólanum og þær þurfa oftast að bíða eftir að
Karólína komi heim svo að hún geti leikið.
Hún er byrjuð aftur í ballettinum og er síðan að fara að keppa í fótbolta á morgun með bekknum sínum. Hún fer í SFO sem er eftirskólinn hérna og gerir marga skemmtilega hluti með þeim þar, eins og um daginn var hún að smíða og kom heim með tré hjarta sem hún hafði sagað út og pússað alveg sjálf. Það er óhætt að segja að henni líði vel hérna og eigi marga vini.
Elenu gengur líka rosalega vel í skólanum, hún er best í stærðfræði, ensku og lestri í sínum bekk og var að fá einkunn úr stafsetningarprófi í vikunni þar sem hún var líka hæst þar með eina villu (algengt var að vera með 11-12 villur). Það má vel taka það fram að við foreldrarnir misstum kjálkann næstum niður í gólf þegar að hún kom heim með þá einkunn, því Elena hefur aðeins verið í Danmörku í eitt ár og samanlagt hafa um 2 1/2 mánuðir af þeim hafa verið á Íslandi.
Hún á einnig heilan helling af vinkonum hérna, bæði Íslenskum stelpum í hverfinu og dönskum úr skólanum og svo gömlu vinkonurnar frá Nordborg.
Hún er byrjuð að æfa með Elite balletthópnum og fær að fara til Kaupmannahafnar í nóvember í æfingaferð í Konunglega ballettskólann http://www.kglballetskole.dk/ hún er búin að vera rosalega dugleg að æfa sig alla vikuna og fara á auka æfingar því að það var koma að koma kona frá Kaupmannahöfn til að skoða hana, ekki nóg með að hafa komist inn í þennan hóp heldur var verið að bjóða henni að æfa með eldri stelpunum líka sem er hópurinn sem að hún sjálf hefur litið svo upp til. Þær voru ofsalega hrifnar af henni og hversu einbeitt og yfirveguð hún er á æfingum.
María Ísól er líka komin til nýrrar dagmömmu sökum flutninga og gengur vel að aðlagast því öllu líka, hún er svo sem mjög auðveldur krakki í umgengni og alltaf glöð og í góðu skapi svo að það var í raun ekki við öðru að búast. Hún er einnig búin að eignast sínar vinkonur í hverfinu en þær eru allar Íslenskar og koma svona 20 sinnum yfir daginn til að tékka á henni, sem henni þykir ákaflega gaman.
María Ísól átti 2 ára afmæli um daginn og er sérstakur áhuga maður um afmæli eftir þá uppákomu, við td. syngjum alltaf afmælissönginn þegar að það er drekkutími eða bara eitthvað gott á borðinu. Henni þykir mjöög gaman að syngja, mér og hljóðhimnunni í mér til mikillar gleði.... því hún á jú mjög sterka rödd sem sem hentar betur til söngs en annars háfaða. Stelpurnar eru ofsalega góðar við hana og ekki einu sinni hafa þær skilið hana útundan eða ekki leift henni að vera með, heldur taka þær hana alltaf með inn í leikinn. ( Hún fær td. að vera hundurinn og tröllabarnið og svona skemmtileg hlutverk ) Stóru systurnar eiga stórt hlutverk í því hvernig Maríu Ísól gengur að samblandast öðrum börnum og hún virðist vera velkominn inn í hvaða hóp sem er.
Amma Jóna kom heim með stelpurnar frá Íslandi og var hjá okkur í viku, það var yndislegt að fá hana í heimsókn og geta sýnt henni lífið okkar, nýja húsið og Sönderborg. Agnes amma er svo á leiðinni til okkar í nóvember og við getum varla beðið.
Við Sigurgrímur erum byrjuð í skólanum, mér líst ágætlega á þetta allt, þetta hljómar voða spennandi og ég er komin langt fram úr sjálfri mér og búin að gera allt sem ég ætla mér næstu árin í huganum þó svo að ég viti vel að það sé ekki mikið verklegt í byrjun....
Ég setti inn nýtt albúm með fleiri myndum merkt "haust 2010"
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.8.2010 | 10:22
Sumarið
Jæja ég veit að ég er búin að vera voðalega léleg að blogga hérna í sumar og það er verið að skamma mig fyrir það.
Ég ætla að stikla á stóru í gegn um sumarið, stóru stelpurnar okkar Elena Dís og Karólína fóru til
Íslands fyrir um mánuði að hitta sitt fólk á meðan við Sigurgrímur vorum eftir með gaurinn okkar hana Maríu Ísól.
Sigurgrímur er að vinna á fullu uppi í skóla og er að undirbúa kennsluna fyrir næsta ár og gengur bara vel hjá honum.
Elena Dís fékk inngöngu í Konunglega Danska Ballettinn í vor og var sú eina sem komst inn á öllu suður Jótlandi. Það kom grein um þetta í 4 dagböðum hér í
Danmörku, ein í Þýskalandi og síðan auðvitað grein um hana í Fréttablaðinu bæði um ballettinn og svo myndatöku sem að hún og Arndís Erla Örvarsdóttir fóru í saman hjá Ítalska Vouge.
Jájá ég er geðveikt montin, hvað getur maður sagt........ hún er snillingur.
Karólína er hjá mömmu sinni á Íslandi og eflaust búin að koma öllum á óvart hversu stór hún er orðin. Við fréttum af henni á bryggjuhátíðinni á Stokkseyri og svo er hún búin að vera hjá ömmu Jónu líka.
María Ísól verður held ég bara fyndnari með hverjum deginum sem líður. Hún er búin að finna sér ömmu og afa á svæðinu sem að henni þykir voðalega gott að fara til og fá köku og fær stundum að gista.
Hún talar ótrúlega mikið næstum "non stop" frá því hún vaknar þar til hún sofnar. Hún er ALLTAF brosandi og kát. Hún hefur mikinn húmor og það er ekkert eins fyndið eins og þegar við foreldrarnir reynum að lesa á dönsku fyrir hana. María Ísól hefur sterkar tónlistar skoðanir og sterka rödd sem fylgir vel með þeim. Hún verður 2 ára í næstu viku og elskar Dóru landkönnuð, Klossa og Nappa.... hún vill fá Nappa-köku í afmælisgjöf.
Ég er svo að byrja í fatahönnun núna í haust og er voða spennt. Ég hafði hugsað mér að fara í þetta nám í fyrra en ákvað að bíða í ár á meðan við vorum öll að tjúna okkur saman og venjast lífinu hérna í Danmörku og ná góðum rithma. Síðastliðið ár hefur verið yndislegt í alla staði og allar ákvarðanir sem að við höfum tekið hafa verið hárréttar á hárréttum tíma. Stelpunum hefir gengið ótrúlega vel í skólanum og lífinu hérna, Sigurgrími gengur vel í skólanum og við kennsluna og María brillerar í þroska og glaðlegheitum.
Núna erum við svo að flytja inn í Sönderborg í stórt og fínt hús sem rúmar okkur aðeins betur, nær skólum og vinum. :)
Við erum búin að eiga yndislegt sumar, liggja á ströndinni, slappa af og nóta þess að vera bara 3 og stundum 2 plana haustið og veturinn og hafa það kósí.
Það eru til afar fáar myndir af okkur fullklæddum, svo það verður bara að hafa það, við erum eins og við séum að breytast í nudista Þeir sem vilja geta síðan farið á facebook og séð hundruði mynda í viðbót af okkur hálfnöktum eins og vanalega.
Í næstu viku byrjar svo allt á fullu, stelpurnar koma heim, skólarnir hjá okkur fara að byrja og flutningarnir fara í gang. Amma Jóna er að koma og ætlar að vera hjá okkur í viku, það verður voða gott að fá hana og sýna henni bæði húsin.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 10:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
1.5.2010 | 00:44
Vorið, afmælið og balletsýningin
Mikið er langt síðan ég hef skellt inn færslu hérna. Það er mikið að gera á stóru heimili, sl vikur hafa verið þétt bókaðar og hver einasti dagur upptekin. Mikið að gera í vinnunni hjá mér og að halda utan um félagslífið hjá öllum krefst svolítillar fyrirhafnar og tíma, en þetta fer allt að róast í næstu viku.
Vorið er svo sannarlega komið hérna á norður Als og hitinn fór upp í 23 gráður í gær með sól og tilheyrandi, gróðurinn er allur farin að taka við sér og laufin á trjánum spruttu á 2 dögum. Við erum búin að vera dugleg að vinna í garðinum sem hefur verið óhirtur sl ár, og hann er allur að koma til nú vantar bar fín skraut blóm og hlið svo að hlaupa drottningin okkar sleppi ekki í burtu á meðan við skvísurnar erum í sólbaði.
Það hefur legið svolítið á að garðurinn komist í gott stand því að núna í mai og júní þurfum við bókstaflega að flytja út í garð því það á að taka eldhúsið og baðherbergin bæði í gegn, svo að við verðum baðherbergis- og eldhúslaus í mánuð.. gaman að því.
Karólína varð 8 ára í síðustu viku og það var haldið upp á daginn með stæl, þar sem hún er prinsessan á heimilinu var auðvitað PRINSESSU þema og öllum gestum ráðlagt að mæta í sínu fínasta pússi, helst í prinsessukjól eða sjóræningja búning. við vorum rosalega heppin með veður og grilluðum pylsur í nýja grillinu okkar og borðuðum prinsessukökur.
Ég setti inn heilan helling af myndum úr frábæru afmæli á facebook sem hægt er að sjá HÉR ef þið viljið skoða betur
Og svo að lokum þá má ekki gleyma sjálfri ballettsýningunni sem er búið að vera að æfa fyrir sl mánuði.
Mikið rosalega vorum við stolt af stóru stelpunum okkar í dag, Sigurgrímur átti ekki orð og hann skemmti sér bara svona vel á ballettsýningunni, jafnvel þó svo að hann hafi setið einn úti í sal með Maríu. Ég fékk það hlutverk að hjálpa til á sýningunni og halda utan um einn hópinn, sem gaf mér þá þau forréttindi að fá að vera með allan daginn og á æfingunni og taka myndir Því miður var ég upptekin við að klæða og greiða á meðan stóra æfingin hjá Karólínu var svo að ég náði ekki myndbandi af æfingunni hennar, en ég náð held ég öllu öðru.
Karólínu hópur voru Rúnenskar Babúskur og Elenu hópur Ítalskar blómarósir, þarna voru svo líka kúrekar, arabískar stúlkur, kósakkar, skoskar, spænskar og kínverskar stúlkur. Sýningin var ótrúlega flott. Hér er heimasíðan hjá skólanum þeirra.
Ég hvet ykkur til að spóla aðeins til baka og sjá myndbandið af Karólínu sem var tekið í janúar og sjá hvað henni hefur farið ÓTRÚLEGA fram. Það er ótrúlega gaman að sjá hvað Íþrótt getur haft áhrif á marga hluti. Hún er algjörlega að brillera þarna.
Elena Dís er líka að standa sig frábærlega og var boðið að færa sig upp um hóp í sumar, ég held að það segi bar allt sem segja þarf, hún fékk það hlutverk að leiða hópinn (fremst í miðju) í sýningunni sem er voðalega mikill heiður.
Og svo að lokum þá fórum við út að borða með skvísurnar okkar til að halda upp á þær.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 01:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
10.3.2010 | 23:27
Vika 10
Í Danmörku er allt talið í vikum..
María er ekkert voðalega vinsæl hvorki í Bardie né Lundby og fær ekkert alltaf að vera með, sem er mjög ósanngjarnt, því hún á ekki eins fín hús og stelpurnar. Því var reddað og útbúið "hús" úr gamalli hillu, við tókum stóran pappa, máluðum ævintýraland fyrir hana og eins og sést þá var hún ansi ánægð með aðstöðuna.
Sigurgrímur gerði þau mistök að sofna í sófanum um síðustu helgi.......hehehehehe OF freistandi
Verst að glimmerið sem var svo fagmannlega stráð yfir hann sést ekki. María sagði bara " Vá, FLOTT "
María Ísól ræður því sem hún vill ráða og stelpurnar bara hlíða því sem þeim er sagt. Annars eins og eflaust heyra má þá talar hún mikið og hefur mikinn og skýrann orðaforða, við höfum ekki neinar áhyggjur af því að hún verið eins og mörg önnur tvítyngd börn og verði eitthvað sein til að tala eða illa talandi. Dagmamman hennar segir hana byrjaða að tala mikið á dönsku og að hún tali líka stanslaust þar.
.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.3.2010 | 00:40
Ísland
Við skelltum okkur til Íslands fjölskyldan í vetrarfríinu okkar núna um daginn. Mikið var það gaman, ótrúlega mikið sem komst í verk og ekkert stress. Hittum "næstum" alla sem við ætluðum okkur að hitta og gerðum allt sem við ætluðum að gera. Við skipulögðum ferðina rosalega vel og áttum nógan tíma í að "gera ekki neitt" á hótel mömmu í Hafnarfirðinum.
En já úr því þetta er svona myndablogg þá stikla ég á stóru, við tókum helling af myndum en samt ekki nógu margar því jú eins og alltaf þá vantar margt og marga.... en hér eru nokkrar í viðbót, annars er hellingur á Fésbókinni þið sem hafið hana..
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 01:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.2.2010 | 11:47
Allt á kafi
í snjó.
Hér snjóar enn eins og engin sé morgundagurinn. Þetta fer að verða komið gott, mig er farið að langa svolítið eftir sumrinu. En ég þarf víst ekki að örvænta því við erum að fara að taka forskot á vorið og fara í hlýjuna til Íslands. Það eru flestir dagarnir að verða upp bókaðir hjá okkur, við erum víst svo mörg og allri að fara á sitthvorn staðinn og svo hittast á sama stað á ákveðnum tímum þannig að það verður að skipuleggja hvern og einn svo að allt gangi upp og engin skilin eftir. Við viljum hitta sem flesta og gera sem mest en samt ekki gera neitt og slappa af. Eitt er víst að ég ætla í sund og borða soðna ýsu með smjöri, og sushi.... ekki í sundi samt.
María er að vanda voða dugleg, byrjuð að pissa í koppinn sinn , hún talar endalaust - hátt og skýrt haha eins og þeir sem hafa hitt hana vita eflaust. Hún er byrjuð hjá dagmömmu og gengur bara rosalega vel enda orðin eins og hálfs árs. Hún talar bara á íslensku við dagmömmuna sína og segir EKKERT á dönsku hahaha. Svo að í morgun fórum við með orðabókina góðu sem að stelpurnar byrjuðu með til dagmömmunnar svo að hún gæti nú skilið barnið. Það gæti verið pínu skrítið að vera með síblaðrandi barn sem að maður skilur ekki.
Ég setti inn nokkrar myndir í albúm merkt Nordborg af .... Nordborg, flestar stolnar frá honum Óla vini okkar, ég ætla að vera dugleg að bæta inn á þetta reglulega.
27.1.2010 | 21:31
Lína-ballerína
26.1.2010 | 10:58
Ballerínur
Stelpurnar eru að byrja í ballet núna, Elena eftir rúmt árs hlé og Karólína í fyrsta skiptið.
Karólína er búin að vera að æfa sig upp á dag í mjöööööög langan tíma og getur varla beðið. Fyrsti tíminn hennar er í dag en hún fékk að fylgjast með Elenu í hennar fyrsta tíma.
Kennarinn hennar Elenu átti ekki til orð yfir hana þegar hún var búin með fyrsta tímann "þvílíkir hæfileikar" var það sem að hún sagði aftur og aftur, Elena er komin í "elitegruppe" strax og var boðið að sækja um í Danska konunglega ballettinn. Hún þakkaði mér kærlega fyrir að koma með hana í ballettskólann sinn og sagði aftur "þvílíkir hæfileikar" Ég labbaði út með tárin í augunum og bros allan hringinn að springa úr monti, og Elena auðvitað líka því loksins fékk hún útrás og fékk að reyna á sig. Henni hefur leiðst svo hræðilega sl ár í ballettinum því þar er ekki eins mikið action og "challance" eins og í fimleikunum, en núna eru komin inn fleiri spor og stökk, henni þótti ótrúlega gaman. Eitthvað fyrir hana.
Í hópnum hennar Karólínu eru bara 8 stelpur svo að hún fær góða kennslu og mikla athygli. Ég ætla að ath hvort ég fái ekki að smyglast inn með myndavélina.
En svona rétt á meðan, gamlar balletmyndir.
Um bloggið
Hugmyndir, tíska, fjölskyldan og fleiri fíflalæti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar