Færsluflokkur: Lífstíll
18.8.2008 | 00:28
Loksins komin
Jæja nú er hún er loksins komin og komin heim, hún lét aðeins bíða eftir sér litla daman og fæddist með krumpaðar hendur og tásur, hihihi
Hún kom 14.08.08 og allt gekk voða vel, og okkur líður rosa vel líka.
Þetta er algjör prinsessa og heyrist ekki í henni, hún er ofsalega vær og góð og ansi mikið lík systur sinni í útliti þeas. hún hefur kína-augun okkar Elenu Dísar.
Svo eru fleiri myndir af dömunni í albúminu hér til hliðar.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 01:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
8.8.2008 | 16:34
Biðin mikla.
Jámm við erum enn að bíða, þetta virðist ekkert að vera að koma. Ég er enn óþolandi hress sama hvað ég geri - er búin að vera að hjálpa við að pakka niður fyrir Danmerkur ferðina fara í útilegu og allt, enn með svona 3-4 krakka að meðaltali rápandi inn og út allan daginn og samt ekkert að gerast.
Gaman hvað fólk er duglegt að hringja í mann og msn-ið er eins og diskó ljós Við erum samt að renna út á tíma því Sigurgrímur fer út eftir 2 daga. Og ég byrja aftur í skólanum eftir rúma viku.
Hér eru svo stóru systurnar sem bíða óþreyjufullar eftir litla barninu, svaka skvísur hér á ferð.
Svo ein af okkur frænkum tekin fyrir 2 vikum.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 16:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3.8.2008 | 13:45
Falleg saga
Voðalega væmin og falleg saga.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.7.2008 | 22:14
Kastljósið í dag...
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 22:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
30.7.2008 | 13:24
Pælingar
Rétt áður en að maður fer að sofa á kvöldin skjótast oft upp spurningar um hitt og þetta, væri ekki gott að geta fengið svör við öllum sínum hugsunum strax.
Elena Dís er oft að velta fyrir sér heiminum og gær kom heilt spurninga flóð á borð við: Úr hverju dó ástmaður Vatnsenda Rósu? Hvað hét hann? Hvernig myndast krabbamein? Er hægt að skera krabbamein sem kemur í hálsinn í burtu? En í beinin? Hvað var Spænskuveikin? Hvernig myndast frumurnar í líkamanum okkar? Hvar eru þær geymdar? og svona mátti lengi telja.... Við ræddum þetta í dágóðan tíma og mér fannst ég voða góð að geta svarað mestu af fróðleiksfýsn dóttur minnar og fór að pæla í hvað það væri gott að geta fengið öll svör bara svona strax og manni dettur spurningin í hug rétt fyrir svefninn.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.7.2008 | 15:39
Ísland í dag og stækkandi rass
Það er ekkert að gerast hjá mér, er óþolandi hress en stefni á að koma þessu barni út í næstu viku - það væri mjög góður tími. Annars er 5 ágúst mjög góður dagur í alla staði. Ég er bara að taka því rólega og hangi í Bláalóninu og sundi tímunum saman.
Ég er ekkert að springa eins og margir eru á þessum tíma , þótt maður sé ekkert léttur á sér - er svona meðalstór körfubolti, nema ég tók eftir því í gær að rassinn á mér hefur líka stækkað - það átti ekki að gerast
Og svo í kvöld... verða Kitty og Lilja í Íslandi í dag (linkur 23.07.08) að tala um og kynna Wierd Girls verkefnið okkar - ég var reyndar ekki með í síðasta verkefni vegna líkamsburðar - en mikið rosalega hefði ég viljað vera þar. Það er aldrei að vita nema að einhver video eða myndum verði skotið inn í viðtalið. Gaman gaman - rassinum á mér gæti brugðið fyrir þarna inn á milli í ögn smærra númeri en hann er í dag - ekki missa af því.
Lífstíll | Breytt 24.7.2008 kl. 10:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.6.2008 | 01:42
Framtíðarlandið
Auðvitað vorum við mæðgur á svæðinu - þetta var mjög gaman, Björk og Sigurrós voru frábær.
Okkur varð ekki kalt enda vel búin, ég tók með minn kóngastól í risa pels (eins og aðrir náttúrusinnar hehe) og teppi með ístruna út í loftið liggjandi í makindum eins og Jabba the Hut og naut tónlekanna.
Elena Dís er búin á hestanámskeiðinu og lærði þar ýmsar kúnstir og brögð. Hún er orðin rosa fær og getur nú farið í útreiðatúra í sveitinni.
Veðrið er búið að vera yndislegt alla vikuna að deginum í dag að undanskyldum, rokið hér í Reykjanesbæ er nú margfalt meira en í höfuðborginni svo við höldum okkur bara þar í sólinni og logninu og borðum ís
Set inn nokkrar sumar-myndir frá Hellisgerði og leiksýningunni af Galdrakarlinum í OZ ofl úr vikunni.
![]() |
Óður til náttúrunnar í Laugardal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 16:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
25.6.2008 | 00:47
Sumar, Sól & Sónar
Jæja fór í sónar í gær labbaði út himinlifandi barnið orðið 10 merkur (2500 gr) mér fannst það bara mjög stórt og fínt- þangað til að ég hitti Siggu í dag - hún er komin jafn lagt og fór líka í sónar í gær - hennar barn er orðið 14 merkur Oh dear - mitt er bara hrísla.
En ég fékk mynd af spriklaranum, þetta er hausinn.
(Nebbinn er upp og þetta hvíta er auga.)
Elena Dís er á hestanámskeiði með Jóel Snæ og hún skemmtir sér ótrúlega vel - brosið fer ekki af þetta er augljóslega eitthvað sem á vel við sveitastelpuna mína.
Annars eins og allir vita er búið að vera rosa gott veður sl vikur og við mæðgur erum að njóta þess eins og við getum, erum búnar að gera heilan helling í sólinni. Og borðum mikinn ís.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 00:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.6.2008 | 02:56
Hver man ekki eftir....
Heyrði þetta lag um helgina og myndbandið rifjaðist upp í öllum smáatriðum.
Þetta er það sem mótaði óharðnaðan 14 ára unglinginn mig. Sumarið 1994 þegar vinir stóra bróður komu að sækja mig til að fara að rúnta og fara í bíó - ekki hann. Þetta var árið sem ég fattaði að ég var alvöru unglingur og helv.. töff, að mér fannst amk.
En þetta lag er rosa flott og dramatíkin er í hámarki í þessu myndbandi.
Hvað kom fyrir brúðina?
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.6.2008 | 13:50
Hoppípolla
Elena Dís fór upp á Borg um helgina með pabba sínum og fjölsk. Hitti hrútinn sinn hann Arnar og rúntaði um á nýja fjórhjólinu, kom síðan heim í gær 17. júní. Við kíktum á nýju stelpuna hennar Evu frænku og Elena Dís fékk að æfa sig í að vera stóra systir, fórum svo á alvöru rokktónleika með Ragga Bjarna á eftir þar sem var dansað rokk á götum Reykjavíkur borgar.
Ég fór út að borða með Kitty á Santa María (laugavegi 22) um helgina og mæli eindregið með þessum stað, góður matur fljót þjónusta og mjööög ódýr. Þetta er nýji uppáhalds staðurinn minn núna.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Hugmyndir, tíska, fjölskyldan og fleiri fíflalæti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar